Þá eru barna- og unglingamótin komin inn á mótatöflu GHD. Smelltu á mótaskrá GHD undir mótamál hér að ofan til að skoða mótatöflu sumarsins.
Laugardaginn 4. febrúar var undirritaður samningur við Heiðar Davíð Bragason nýjan yfirþjálfara klúbbsins. Það voru þeir Gísli Bjarnason formaður GHD og Guðmundur St. Jónsson formaður Barna- og unglingaráðs sem undirrituðu samninginn fyrir hönd klúbbsins. Það er mikill fengur að hafa tryggt þjónustu Heiðars næstu árin því auk þess að hafa gríðarlega reynsu í gegnum það að hafa verið afrekskylfingur er hann nú í vor að ljúka PGA-kennaranámi. Heiðar er ekki ókunnur þjálfunarmálum hjá GHD því hann hefur þjálfað hjá klúbbnum við hlið Árna Jónssonar undanfarin ár. Nú tekur hann hins vegar við stjórnvölunum og um leið og við bjóðum hann velkominn í nýtt starf þökkum við Árna fyrir vel unnin störf í gegnum árin. Hér til hliðar má sjá Gísla, Heiðar og Guðmund við undirritun samningsins.
Í sumar verður holukeppni GHD spiluð með nýju fyrirkomulagi. Spiluð verður 18 holu forkeppni og munu þeir 8 keppendur sem ná bestum árangri með forgjöf komast í úrslitakeppni um tiltilinn Bikarmeistari GHD. Þeir 8 keppendur sem bestum árangri ná án forgjafar munu hins vegar keppa til úrslita um titilinn Meistari í holukeppni GHD. Kynnið ykkur endilega reglurnar undir tenglinum Mótamál hér að ofan.
Símanúmer í golfskála
466-1204